Um Olsen bón
Ég heiti Ragnar Olsen og rek Olsen bón í Reykjanesbæ. Ég býð upp á bílaþrif, mössun og keramikhúðun. Þú getur valið allt frá þrifum að innan eða utan upp í alþrif og ítarlegri vinnu á lakkinu.
Við sækjum bílinn og skilum honum aftur
Við semjum um hvar og hvenær ég sæki bílinn og skila honum eftir þrif. Ef þú ert að fara í flug geturðu óskað eftir tíma á meðan þú ert í burtu.

